Wether Channel sem veitandi veðurþjónustu
Góðan dag! Weather Channel á og gefur út vefsíðuna weather.com, farsímaforritið Weather Channel og önnur forrit sem tengjast veðri. En stundum veitir Weather Channel öðrum fyrirtækjum veðurupplýsingar okkar, en þau birta þér þessar veðurupplýsingar á eigin vefsíðum, farsímaforritum og öðrum forritum. Þessi síða útskýrir hvernig Weather Channel notar gögnin þín við þessar sérstöku aðstæður. Varðandi aðrar spurningar um söfnun persónulegra upplýsinga, notkun og/eða samnýtingu með vefsíðu, farsímaforriti eða öðru forriti annars fyrirtækis, sjá persónuverndarstefnu þess fyrirtækis.
Gagnadreifikerfi Weather Channel geta sjálfkrafa veitt veðurupplýsingar fyrir viðkomandi staðsetningu ef okkur er gefin upp sú staðsetning, sem óskað er eftir, á nokkrum auðþekkjanlegum sniðum svo sem póstnúmerum, borgarnöfnum eða landkóðum (breiddar-/lengdargráðu). Staðsetningargögnin gætum við fengið sjálfkrafa úr forritinu sem þú notar, eða þú gætir slegið inn og valið staðsetningu með leit, allt eftir því hvernig hitt fyrirtækið hefur hannað vefsíðu sína eða forrit. Hvort heldur sem er, mun Weather Channel nota staðsetningargögnin eingöngu í þeim tilgangi að afhenda þér upplýsingar um veður fyrir þá staðsetningu. (Athugaðu að þetta þýðir ekki að heimasíða eða forrit hins fyrirtækisins noti ekki staðsetningargögn þín í öðrum tilgangi, þannig að þú skalt kynna þér persónuverndarstefnu hins fyrirtækisins.) Þar sem þess er krafist getur stýrikerfið (OS), vafrinn eða farsímaforritið, sem þú notar, beðið um leyfi til að nota staðsetningargögnin þín eða tilkynnt þér að staðsetningargögnin þín séu notuð. Hvort þetta gerist fer eftir OS, vafra eða appi sem þú notar og hvort þú gafst áður leyfi eða sást tilkynninguna áður. Athugaðu að við getum ekki stjórnað því hvort og hvenær þú færð tilkynningu eða beiðni um leyfi til að nota staðsetningu þína vegna þess að Weather Channel á ekki, hefur ekki umsjón með eða heldur utan um stýrikerfið, vafrann eða forritið sem þú notar.
Á sama hátt og fólk getur ekki sent bréf hvert til annars án póstfanga, geta tæki á internetinu ekki haft samskipti án IP-tölu. Þess vegna notar vefsíða eða forrit hins fyrirtækisins IP-tölu svo við getum veitt tækinu þínar veðurupplýsingar. Hitt fyrirtækið getur átt samskipti við Weather Channel með því að nota IP-tölu sem úthlutað er tækinu þínu á þeim tíma eða IP-tölu fyrir innri kerfi þeirra. Hvort heldur sem er, mun Weather Channel nota IP-töluna eingöngu í þeim tilgangi að afhenda þér veðurupplýsingar.
Þú gætir verið að velta fyrir þér: „Hvenær á persónuverndarstefna Weather Channel við um mig?“ Persónuverndarstefna Weather Channel gildir aðeins þegar notandi heimsækir vefsíðu, farsímaforrit eða annað forrit sem er útgefið og í eigu The Weather Channel.